Stúdíó 3
Listamenn með verkefni sem ekki krefjast hefðbundinna æfingarýma geta sótt um verkefnið Stúdíó 3. Þá fær listamaður aðstöðu í minnsta sal Dansverkstæðisins, sal 3 og faglegt samtal. Verkefnin geta verið af ýmsum toga en samtal við danssamfélagið er kostur.
2026 - Brothætt
Fyrsti listamaðurinn í Stúdíó 3 er dr. Steinunn Knúts Önnudóttir, sem vinnur að verkefninu Brothætt á Dansverkstæðinu á árinu 2026. Steinunn er sviðshöfundur og listrannsakandi sem vinnur með tilvistarlega sjálfbærni, tengslaskapandi nálganir og performatíf stefnumót. Samstarf Dansverkstæðisins og Steinunnar spannar tæpt ár þar sem hún fær vinnuaðstöðu og faglegt samtal.
Verkið Brothætt verður til sem röð rítúala. Fyrst er Heilunin - veggmósaík og hljóðverk sem nær hápunkti með viðburði á Dansverkstæðinu 8. apríl 2026. Annað ritúal nefnist Viðgerðin og fer fram í maí 2026. Loks er Fyrirgefningin í nóvember 2026.
RÓSA
Grimmd og gát er rannsóknarverkefni Rósu Ómarsdóttur þar sem hún kannar flókið samspil illsku og umhyggju, þar sem mörkin milli kúgunar og öryggis verða óljós. Í rannsókninni skoðar Rósa þessa tvíræðni bæði fræðilega og í gegnum hreyfirannsókn, þar sem sama athöfn getur verið bæði blíð og grimm, örugg og óttaslegin. Með fræðirannsókn, hreyfirannsóknum og samtölum við listafólk og fræðimenn skoðar Rósa hvernig þessi andstæðuöfl fléttast saman í mannlegum samskiptum, listum og menningu.
Verkefnið byggir á fyrri tilraun sem þróuð var í tengslum við sýningu á Sequences-hátíðinni. Í stúdíó 3 er hún að þróa hreyfingar og aðferðir sem kanna þessi mörk, bæði ein og í samstarfi við dansara. Rannsóknin er í vinnslu og gæti þróast áfram í nýtt dansverk.




