Sumarvinnustofur
Danslistafólki á aldrinum 20 - 35 ára býðst vinnustofudvöl á Dansverkstæðinu í júlí ár hvert. Markmið vinnustofunnar er að veita tveimur umsækjendum tíma, rými og hóflegan styrk til að vinna að nýju verkefni. Verkefnið getur verið í formi rannsóknar, þróunar eða sköpunar á nýju verki. Hægt er að sækja um sem einstaklingur eða hópur. Í lok vinnustofunnar er húsið opnað almenningi og afrakstur vinnustofunnar kynntur. Starfsfólk Dansverkstæðisins býður fram faglega ráðgjöf og stuðning bæði á meðan vinnustofunni stendur og eftir að henni lýkur.
Hver einstaklingur/hópur fær:
-
Allt að 200 tíma í æfingasal og skrifborðsaðstöðu á Dansverkstæðinu.
-
Styrk sem nýta má í efniskostnað og/eða þóknun.
-
Ráðgjöf frá starfsmönnum Dansverkstæðisins og annarra sérfræðinga/listamanna.
-
Ljósmyndun og upptaka frá viðburði þegar afrakstur er kynntur.
2026
Listamenn í sumarvinnustofu Dansverkstæðisins 2026: Marta Ákadóttir og Lísandra Týra Jónsdóttir.




_edited.jpg)




Ljósmyndir úr sýningu: Owen Fiene
Ljósmyndir úr sýningu: Owen Fiene
Marta Ákadóttir vann að verkinu Vatnsbyssustríð ásamt Bertine Bertelsen Fadness og Leevi Mettinen. Saman voru þau að rannsaka barnaleiki, internetið, vatnsbyssur og átök.
Lísandra Týra Jónsdóttir vann að sóló verkefninu Op. 5: The Body Living. Verkið er ferðalag sem umbreytir líkama og rödd með stöðugri en síbreytilegri endurtekningu á milli mannlegrar og minna mannlegrar tilveru. Í þessu nýja sviðsverki mætast þrjú kjarna element: hreyfing, rödd og lifandi vídeó vörpun.
2025
Listamenn í sumarvinnustofu 2025: Birta Ásmundsdóttir og Anouk Jouanne.





Birta Ásmundsdóttir vann að verkinu Deildin, sem skoðar fótboltamenningu frá sjónarhóli listdansins.
Dansarar á mynd: Cristina Agueda, Inga María Olsen, María Kristín Jóhannsdóttir, Bjartey Elín Hauksdóttir, Karítas Lotta Tulinius, Lena Margrét Jónsdóttir
Anouk Jouanne (IS) og Synne Lundesgaard (NO) unnu að verkinu Tender Unit, þar sem þær rannsökuðu hvernig kenningar um varnarhætti sjálfsins gætu verið túlkaðar í gegnum hreyfingar og sviðsetningu. Dansarar voru Anouk Jouanne, Eydís Rose Vilmundardóttir, Marta Hlín Þorsteinsdóttir og Vár Bech Árting.
2024
Listamenn í sumarvinnustofu Dansverkstæðisins 2024: Alice Romberg & Olivia Teresa Due Pyszko and Linde Hanna Rongen.



Alice Romberg & Olivia Teresa Due Pyszko unnu að verkinu Restling. Getur hvíld verið einhvers konar andóf?
"We’ve explored our potential, when resting is actually included in practice and what resting and resistance can mean in a performative context."



Linde Hanna Rongen hélt áfram með verkefnið Project HOFIE:
To be swallowed accidentally.
"A world where darkness surrounds, and everything falls quiet, one might end up running. Speed is another light, speed makes things smaller, quicker to pass. So run if you will, maybe you can be the one who swallows the sun."
Dansarar: Inga María Olsen, Íris Ásmundardóttir, Júlía Kolbrún Sigurðardóttir, Sóley Ólafsdóttir
2023
Listamenn í sumarvinnustofu Dansvserkstæðisins 2023: Sóley Frostadóttir og Sóley Ólafsdóttir & Leevi Mettinen.




Ljósmynd úr sýningu: Nicolas Ipina

Sóley Frostadóttir vann rannsókn og undirbúning á verkinu TIF, verk fyrir 3 taktmæla og 3 dansara, Erlu Rut Mathiesen, Ingu Maríu Olsen og Söru Margréti Ragnarsdóttur.
Sóley Ólafsdóttir og Leevi Mettinen unnu að barna- og fjölskyldusýningunni Kanlínudans (Rabbit Erosion).
