top of page
  • Facebook
  • Instagram

Námskeið 

​Námskeið á Dansverkstæðinu eru liður í símenntun og framþróun atvinnufólks í dansi, sem stöðugt endurnýjar og bætir við þekkingu sína og færni. Viðfangsefni sumra námskeiðanna er danstækni eða stíll, á meðan önnur snúa að skynjun og skapandi þáttum listformsins. Erlendir gestakennarar færa með sér ferska strauma og innlendir kennarar stækka reynsluheiminn og búa til sameiginlegan þekkingargrunn.​​ Gestalistamenn Dansverkstæðisins veita innsýn inn í sköpunarverk sín og viðfangsefni með opnum námskeiðum og viðburðum veturinn 2026-27.​​​​​​

Námskeið 2026-27

27. september kl 13:00 - 14:00

Opinn danstími fyrir feður og unglingana þeirra - Anna Kolfinna Kuran

​​

27. september kl 16:00 - 18:00

Botanics of the Body - Costanza Givone (PT/IT)

​

21. október kl 19:00 - 21:30

The Mess We Make - Sigrún Ósk Stefánsdóttir

​

2. - 6. nóvember kl 11:00 - 14:00

Flóðreka repertoire workshop - Aðalheiður Halldórsdóttir

Í samvinnu við Íslenska dansflokkinn

​

15. - 17. nóvember kl 10:30 - 14:00

Repertoire workshop - Bryndís Ragna Brynjólfsdóttir

​

​

​

Opinn danstími fyrir feður og unglingana þeirra

27. september kl 13:00 - 14:00

​

Anna Kolfinna Kuran, gestalistamaður 2026-27, býður í opinn tíma fyrir feður og unglinga. Tilefni þessa danstíma er að Anna Kolfinna vinnur nú að dansverkinu Pabba Reif þar sem flytjendur eru feður og unglingar og langar að opna þessa hugmynd fyrir sem flestum. Allir feður með unglinga frá 13 ára aldri eru hjartanlega velkomnir. Engin kunnátta í dansi er nauðsynleg, en kostur að hafa gaman af góðri danstónlist. Dansgleði og grúf ræður ferðinni, þar sem hópur feðga/feðgina mætist í dansi. Tíminn er ókeypis og varir í eina klukkustund.

​

Anna Kolfinna Kuran útskrifaðist með BA gráðu í dansi frá Listaháskóla Íslands 2013 og úr performans fræðum frá New york háskóla 2017. Meðal stærri verka hennar eru Yfirtaka sem hún sýndi víðsvegar um Ísland og Norðurlönd 2019-2022. Þar vann hún með konum á aldrinum 10 - 99 ára. Hópar unglinga í Reykjavík og á Austfjörðum tóku þátt í verkinu Femínískt Reif á árunum 2022-2024.

​

Ókeypis aðgangur og skráning ekki nauðsynleg

​

​

Botanics of the Body with Costanza Givone (PT/IT)

27. september kl 16:00 - 18:00

​

Botanics of the Body proposes a dialogue between scientific research into plants and the practice of movement.

​

Plants’ strategies of adaptation, resilience and survival become a starting point to investigate how the moving body can create through a state of deep listening and dialogue with its surroundings. The workshop also engages with the silent conflict that runs through plant life: forces that compete, resist and transform.Drawing inspiration from yoga, the Nikolais Technique, Meyerhold’s biomechanics and the Grotowski method, these practices provide a framework for investigating different states of relationship, listening and action.  A laboratory for imagining the body as a living organism, in constant dialogue with its environment.

​

Costanza Givone is a performer, choreographer and artistic director based in Portugal. She holds a Master’s degree in Performing Arts and a postgraduate degree in Contemporary Dance from ESMAE, Porto. Since 2012, her work has focused on transdisciplinary creation, combining voice, movement and visual arts. In 2019, she founded Fogo Lento – Associação Cultural, where she is artistic director. Her current artistic research focuses on the relationship between humans and other forms of life, particularly plants, forests and ecosystems.

​

The workshop is supported by the Calouste Gulbenkian Foundation and free of charge for participants.

​

Skráning á Botanics of the Body

micelio foto de costanza givone_edited.j
1000002291 (1).jpg

The Mess We Make

21. október kl 19:00 - 21:30

​

Á vinnustofunni verður unnið með hekl og hreyfingu sem aðferðir til að hugsa. Kannski munum við tala og spjalla saman, en það er ekki skilyrði eða markmið í sjálfu sér. Kannski verður teiknað eða skrifað, en það er líka valkvætt. Á meðan á vinnustofunni stendur er þér frjálst að flæða milli verkefna eins og þér hentar, og mátt alltaf hefjast handa eða hætta við hvaða verkefni sem er. Á staðnum verður garn til afnota. Ég legg til að við notum fingurna (eða aðra líkamshluta) sem heklunálar. Það er velkomið að koma með eigin efnivið og verkfæri. Eina markmiðið er að mætast í tíma og rúmi, og deila viti og vitleysu. 

 

Grunnreglur: 

  • Þér er ekki skylt að gera neitt og er frjálst að vera með í rýminu og taka þátt af þeim krafti sem þú hefur og líður vel með. 

  • Þú mátt koma og fara eins og hentar þér. 

  • Allar spurningar eru gagnlegar og velkomnar, en engar eru nauðsynlegar. 

  • Það er alltaf velkomið að tala og tjá sig, en það er aldrei skilyrði

  • Augnsamband er valkvætt og má ekki þvinga.

  • Snerting er valkvæð og má ekki þröngva uppá neinn. 

  • Vinsamlega verið ekki með ilmvötn eða aðrar lyktsterkar vörur

  • Vinsamlega klappið ekki í endann. Ef þig langar að tjá gleði eða þakklæti, ertu beðin(n)/ð að gera það hljóðlega

  • Fylgið eigin forvitni, þörfum og þrám

 

Um Sigrúnu:

Sigrún er einhverfur dansari sem m.a. upplifir og hugsar um heiminn í gegnum hreyfingu og handavinnu. Þessi vinnustofa er tilraun til að deila þeim reynsluheimi og í leiðinni reyna að skapa umhverfi sem er þægilegt, aðgengilegt og skynvænt.

Sigrún er gestalistamaður Dansverkstæðisins 2026-27.

​

Námskeiðið er ókeypis, en við biðjum ykkur að skrá ykkur svo við getum áætlað fjölda þátttakenda.

SKRÁNING HÉR

840600356_1982888176358778_4154304130165056738_n.jpg

Flóðreka repertoire námskeið með Aðalheiði Halldórsdóttur

Í samvinnu við Íslenska dansflokkinn

2. - 6. nóvember

Mán - fös kl. 11:00 - 14:00

​

Stefnumót við danshöfund og efnivið sviðsverksins Flóðreka sem sett var upp af Íslenska dansflokknum á nýja sviði Borgarleikhússins í samstarfi við hljóð- og ljósaheim tónlistarmannsins Jónsa. Fimm sinnum þrír tímar saman í stúdíó þar sem þreifað verður á físískum lögmálum hreyfiefnisins og valdir hlutar verksins lærðir og unnir. Hver er uppsprettan og mótorinn, hvar hvílir meðvitundin í einstaklingnum og í sambandi hans við annan og til hvers er eiginlega verið að dansa?

​

Aðalheiður Halldórsdóttir er höfundur og dansari með nærri þriggja áratuga reynslu úr heimi sviðslista. Hún dansaði með Íslenska dansflokknum í um sextán ár og hefur komið að sköpun hátt í hundrað verka, smárra og stórra, sem flytjandi, danshöfundur og leikstjóri. Á þeirri leið hefur henni hlotnast að vinna með listafólki úr öllum kimum menningarinnar, þar á meðal Ohad Naharin, Ernu Ómarsdóttur, Margréti Bjarnadóttur, Ragnari Kjartanssyni og Anne Carson. Fyrir störf sín hefur hún hlotið bæði verðlaun og tilnefningar til Grímunnar, nú síðast fyrir Flóðreka, sem hún skapaði í samstarfi við Jónsa í uppsetningu Íslenska dansflokksins og hlaut fjórar tilnefningar. Aðalheiður er einnig ljóðskáld og vinnur á mörkum hreyfingar og texta.

Aðalheiður er gestalistamaður Dansverkstæðisins 2026-27.

​

Verð: 30.000- kr. / Félagsmenn Dansverkstæðisins fá 15% afslátt (25.500- kr)

SKRÁNING HÉR

Hafðu samband:

​info@dansverkstaedid.is

Dansverkstæðið

Hjarðarhaga 47

107 Reykjavík

​

kt 560710-0700

Vilt þú vera á póstlista Dansverkstæðisins?

© 2019 Dansverkstæðið

bottom of page