top of page

Erasmus+ verkefni

Með stuðningi Erasmus+ áætlunar Evrópusambandsins hefur Dansverkstæðið staðið að náms- og þjálfunarverkefnunum ON THE MOVE 2023 - 24, TOOLBOX 2024 og MOMENTUM 2024 - 25. Markmið verkefnanna er að auka aðgengi sviðslistafólks að fullorðinsfræðslu og endurmenntun erlendis. Verkefnin miða að því að auka við þekkingu sem ekki er hægt að sækja sér hér á landi, byggja tengslanet, þróa starfshætti og bæta í reynslubankann.

5.jpg

ON THE MOVE 

Í verkefninu ON THE MOVE fóru13 aðilar út til 11 stofnana í 9 löndum, ýmist á námskeið eða “job shadowing”. Viðfangsefni námskeiða voru m.a sviðslistir fyrir börn og unglinga, spunaaðferðir í danskennslu og menningarstjórnun og framleiðsla.​​​​

6.jpg

TOOLBOX 

Í verkefninu TOOLBOX fóru 33 aðilar út til 17 landa/stofnana á námskeið og “job shadowing”. Viðfangefni námskeiða var m.a sagnfræðileg varðveisla á dans- og sviðslistaverkum, dans dramatúrgía, aðferðir, stílar og verkfæri í danskennslu og aðferðir við gerð danslistaverka.

7.jpg

MOMENTUM 

Í verkefninu MOMENTUM  fóru 18 aðilar út til 7 landa/stofnana. Viðfangsefni námskeiða voru m.a ólíkar kennsluaðferðir og tækni í danslistum, aukin þekking á framleiðsluferlum sviðslistaverka og starfsþróun í framleiðslu sviðslistaverka og rekstri menningarstofnana.

Hafðu samband:

​info@dansverkstaedid.is

Dansverkstæðið

Hjarðarhaga 47

107 Reykjavík

​

kt 560710-0700

Vilt þú vera á póstlista Dansverkstæðisins?

© 2019 Dansverkstæðið

bottom of page