Momentum
Dansverkstæðið hlaut Erasmus+ styrk fyrir verkefnið MOMENTUM 2024-25.
Markmiðið var að auka aðgengi sviðslistafólks og þá sérstaklega danslistafólks að fullorðinsfræðslu, endurmenntun og þjálfun erlendis.
Verkefnið styrkti skipulagsgetu Dansverkstæðisins, jók sjálfstraust starfsfólks og stækkaði alþjóðlega tengslanetið. Þátttakendur kynntu nýjar kennsluaðferðir og hugmyndir að skipulagi, á meðan innri kerfi fyrir samskipti og samninga bötnuðu. 15 aðilar tóku þátt í MOMENTUM og fengu þannig aukið aðgengi að alþjóðlegri þekkingu sem skapaði skýran ávinning fyrir starfsfólk, nemendur og samfélagið í heild.
Erlendir samstarfsaðilar í verkefninu voru:
-
Raumstation 12 GBR, b12 festival, Þýskaland
-
Movement Archery, Portúgal
-
Sanatorium, Pólland
-
Tic Tac Art Centre, Belgía
-
Impulstanz, Austria
-
Julidans, Holland
-
NDC, Ítalía
-
Scenehuset, Norway
-
Elontila, Finnland
Í MOMENTUM var áhersla lögð á lengri ferðir með meiri viðveru á hverjum stað til að gefa færi á dýpri vinnu og umfangsmeiri þekkingu. Verkefnið styrkti getu starfsfólks sem starfar við stjórnun og verkefnaþróun og veitti því nýja þekkingu á skipulagslíkönum, samskiptaáætlunum, skjalavörsluvenjum og alþjóðlegu samstarfi. Áhrifin náðu lengra en til beinna þátttakenda. Kennarar komu aftur með nýjar aðferðir og deildu þeim í gegnum námskeið, vinnustofur og óformleg samskipti. Verkefnið studdi einnig við áframhaldandi þróun þjálfunaráætlunar Dansverkstæðisins með vikulegum þjálfunartímum, nýjum aðferðum og auknum tækifærum til óformlegs náms. Einnig stuðlaði verkefnið að auknum rafrænum sýnileika með uppfærðri heimasíðu og virkni á samfélagsmiðlum.
Þátttakendur hafa orðið
Birta Ásmundsdóttir:
My name is Birta Ásmundsdóttir and I am a dancer and choreographer from Reykjavík, Iceland. I got the amazing opportunity to go to Julidans festival in Amsterdam, in July 2025,
as a part of the Visiting Artist Program. The trip was partly funded by the Reykjavík Dance Festival/Visiting Artist Program as well as by the Erasmus program.
In Amsterdam, I was accompanied by other dance artists from several countries in Europe where we went to see the performances of Julidans together. Afterwards we would discuss the performances as well as getting to know each other as artists and people. In the workshops, we told each other about the dance opportunities we had stumbled across in our careers, as well as giving each other information about what our countries had to offer regarding residencies, workshops and grants. Therefore we all came home with a lot of information on how we can utilize our countries’ and other countries’ opportunities.
We also got to speak to some of the choreographers of the performances in the festival through artist talks. There we were able to ask them every question imaginable after seeing their show and dive deeper into the ideology of the rehearsal and research process.
I am very thankful for this opportunity and I had the best time getting to know the other visiting artists as well as those that worked for the festival. I feel very inspired after this trip and will continue to reach out to those that I connected with during Julidans. Whether that is to ask about certain applications, start a new project together or just to check in with each other. I have gained a lot of knowledge as a dancer and choreographer after taking part in the Visiting Artist Program in Julidans, Amsterdam.

Anna Guðrún Tómasdóttir:
Ég heiti Anna Guðrún Tómasdóttir og ég fékk að taka þátt í áhugaverðri vinnustofu hjá Movement Archery í Lissabon með Tom og Roser.
Við byrjuðum alltaf á sömu upphitun sem snérist ekki bara að hita upp líkamann heldur líka hugann. Þau tóku mikinn innblástur frá Chi Kung, Tai Chi og Shadow Yoga, og fókusinn var á að tengja öndun og hreyfingu. Það var áhugavert hvað fótleggirnir fengu mikla athygli, oft gleymum við mikilvægi þeirra.
Einn af uppáhalds hlutunum mínum var spunahlutinn, þar sem við unnum með aðferð sem heitir Clean Paper. Hún gengur út á að kanna eigin hreyfitjáningu án þess að hugsa um útkomuna. Það var svo frelsandi að fá að prófa sig áfram og leyfa hreyfingunni að koma innan frá, án þess að dæma sig. Þetta hjálpaði mér að tengjast líkamanum á annan hátt og leyfa líkamanum að finna út úr hreyfingunni sjálfri, líkaminn veit meira en hugurinn gerir sig grein fyrir.
Stór partur af vinnustofunni var að dansa með öðrum, hlusta eftir vísbendingum og vera opin fyrir samspili. Það var lærdómsríkt að sjá hvernig dans getur verið samtal, vera var við hvorn annan og læra að tala saman án orða.
Tæknilegi hlutinn var krefjandi, en líka mjög skemmtilegur. Við lærðum að detta, velta, snúa og vinna með líkamsþyngdina á öruggan hátt. Það var mikill leikur í þessu öllu saman, og mikið lagt upp úr að halda forvitninni lifandi og leyfa sér að vera mannlegur í hreyfingunni. Allt í allt var þetta dásamleg upplifun sem gaf mér víðari hreyfiforða.
