top of page

Um Dansverkstæðið

Dansverkstæðið hefur verið heimili og hjarta íslenskrar danslistar allt frá stofnun þess árið 2010. Það gegnir lykilhlutverki í innviðum listgreinarinnar og er eini samastaður sjálfstætt starfandi danslistafólks á Íslandi. Dansverkstæðið er ekki aðeins húsnæði heldur burðarás í uppbyggingu heillar listgreinar, miðpunktur og flaggskip íslenskrar danslistar þar sem faglegt samfélag verður til, þekking flyst á milli kynslóða og ný verkefni fæðast.

​

Dansverkstæðið hýsir jafnframt starfsemi lykilaðila í danslist og öðrum sviðslistum, þar á meðal Reykjavík Dance Festival, Félag íslenskra listdansara og ASSITEJ barnamenningarhátíð, auk þess sem félög á borð við Sviðslistasambands Íslands og Félag íslenskra leikara og sviðslistafólks nýta aðstöðuna fyrir fundi og verkefni. 

​

Árlega ræður Dansverkstæðið til sín tugi danslistafólks til að leiða þjálfunartíma, námskeið og veita faglega ráðgjöf, sem styrkir faglegt umhverfi greinarinnar og skapar atvinnu- og þróunartækifæri. Auk fagfólks sækir almenningur í auknum mæli sýningar og viðburði á vegum Dansverkstæðisins. Gott aðgengi tryggir jafnframt þátttöku fatlaðs fólks og undirstrikar hlutverk Dansverkstæðisins sem aðgengilegs og mikilvægs innviðar í íslensku menningarlífi.

​​

Opening Party-25.jpg

Opnunarhátíð á Hjarðarhaga 47, 2019​

Um okkur
untitled-1_edited.jpg
Hreiður

Við erum griðastaður fyrir hæfileika og forvitni sem stuðlar að uppbyggingu, miðlar þekkingu, nærir listamanninn og félagsandann.

​

Brú

Við tengjum einstaklinga og hópa við samfélagið og heiminn.

Brú milli míkró og makró.

​

Rödd

Með rödd okkar höfum við áhrif, miðlum þekkingu og sköpum samtal.

​

Hringiða

Við erum rými fyrir kreatíft kaos.​

Þessi grunngildi Dansverkstæðisins voru samþykkt á stefnumótunarfundi í febrúar 2016

Stjórn og starfsfólk

Stjórn Dansverkstæðisins 2026:

Rósa Ómarsdóttir, formaður

Bjartey Elín Hauksdóttir

Torfi Tómasson

Snædís Lilja Ingadóttir

Valgerður Rúnarsdóttir

Heba Eir Kjeld Jónasdóttir, varamaður

​

Steinunn Ketilsdóttir, framkvæmdastjóri

​Ólöf Ingólfsdóttir, verkefnastjóri

Dansverkstæðið ræður 15 - 25 kennara á ári fyrir þjálfunartíma og námskeið.

Kennarar 2026: Leevi Rauhalahti, Kristín Marja Ómarsdóttir, Sóley Ólafsdóttir, Una Björg Bjarnadóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Yelena Arakelow, Sally Cowdin, Torfi Tómasson, Leevi Mettinen, Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Hrefna Kristrún Jónasdóttir, Anaïs Barthe, Kirill Berzovski, Bryndís Ragna Brynjólfsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir, Díana Rut Kristinsdóttir

Sjá meira um kennarana hér.

​

Einnig aðstoða Hjálparhellur Dansverkstæðisins við sýningar og viðburði á Dansverkstæðinu. Sá hópur telur 10 - 15 manns ár hvert.

SK portrait_edited.jpg

Steinunn Ketilsdóttir

steinunn@dansverkstaedid.com

9T9A7807_edited_edited_edited.jpg

Ólöf Ingólfsdóttir

info@dansverkstaedid.com

Stjórn og starfsfólk

Skýrslur um dans

Danshús á Íslandi

​Nýsköpunarsjóður námsmanna, 2023

Danshús á Íslandi

Samtök um Danshús, Íd og RDF, 2017

Dansstefna 10/20

​FÍLD, 2010

Dansstefna 22/23

​FÍLD, 2022

Listdanskennsla á Íslandi

​FÍLD, 2011

Tillögur að Danshúsi

​FÍLD, 2007

Skýrslur um dans

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið styður Dansverkstæðið

MNH_IS_3L-RGB.png
Reykjavik_Coat_of_Arms.svg.png

Reykjavíkurborg

styður Dansverkstæðið

Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins

styður sérverkefni Dansverkstæðisins

Stuðningur

Hafðu samband:

​info@dansverkstaedid.is

Dansverkstæðið

Hjarðarhaga 47

107 Reykjavík

​

kt 560710-0700

Vilt þú vera á póstlista Dansverkstæðisins?

© 2019 Dansverkstæðið

bottom of page