top of page
  • Grey Facebook Icon
  • Grey Instagram Icon
Opening Party-25.jpg

STARFSEMI

Dansverkstæðið - vinnustofur danshöfunda, var stofnað árið 2010 af hópi danshöfunda sem vildi bæta vinnuaðstöðu danslistafólks. Dansverkstæðið leigir æfingasali til sviðslistafólks; danslistafólks, leikhópa, óperuhópa og sirkuslistamanna. Einnig er hægt að leigja sali fyrir námskeið, fundi og aðra staka viðburði. 

Dansverkstæðið skipuleggur reglulega þjálfunartíma og námskeið fyrir dansara og annað sviðslistafólk. Með aðild að ýmsum alþjóðlegum verkefnum tekur Dansverkstæðið þátt í uppbyggingu danslistarinnar og stuðlar að auknum tækifærum fyrir danslistafólk.

 

Reykjavík Dance Festival, Félag íslenskra listdansara og önnur félög og hagsmunasamtök danslistamanna hafa aðsetur í Dansverkstæðinu. Þannig er Dansverkstæðið sameiginlegur vettvangur þessara aðila og heimili dansins.

Starfsemi

Grunngildin

Hreiður  

Við erum griðastaður fyrir hæfileika og forvitni sem stuðlar að uppbyggingu, miðlar þekkingu, nærir listamanninn og félagsandann.

Brú 

Við tengjum einstaklinga og hópa við samfélagið og heiminn. Brúin milli míkró og makró.

Rödd  

Með rödd okkar höfum við áhrif, miðlum þekkingu og sköpum samtal.

Hringiða 

Við erum rými fyrir kreatíft kaos.

Þessi grunngildi Dansverkstæðisins voru samþykkt í

stefnumótunarvinnu Dansverkstæðisins í febrúar 2016

Grunngildin
Dansverkstæði Portraits-26.jpg

Tinna Grétarsdóttir

framkvæmdastjóri

tinna@dansverkstaedid.is

Stjórn Dansverkstæðisins 2023 er þannig skipuð:

Rósa Ómarsdóttir, formaður

Sigurður Arent Jónsson, ritari

Bryndís Nielsen, gjaldkeri

Valgerður Rúnarsdóttir, meðstjórnandi

Snædís L Ingadóttir, meðstjórnandi

Varamenn:

Melkorka S Magnúsdóttir og Heba Eir Jónasdóttir Kjeld

​Ársskýrsla Dansverkstæðisins 2022 - væntanleg

Ársskýrsla Dansverkstæðisins 2021

Ársreikningur Dansverkstæðisins 2022

STARFSFÓLK & STJÓRN

Starfsfólk og stjórn

SAMSTARF

Dansverkstæðið vinnur að ýmsum verkefnum í samstarfi við innlenda og erlenda aðila.

Samstarf

SAGAN

Dansverkstæðið var stofnað árið 2010 af hópi danshöfunda sem fannst vanta samastað fyrir danshöfunda til að æfa og þróa list sína og starfsferil. Með styrk frá Reykjavíkurborg var leigu-samningur undirritaður 10. ágúst 2010 fyrir Skúlagötu 28, 4. hæð og hafist handa við að mála rýmin og leggja trégólf. Húsnæðið opnaði svo formlega 1. október.

Eftir tæp tvö ár á Skúlagötu 28, flutti Dansverkstæðið yfir á Skúlagötu 30, 2. hæð og starfaði þar áfram til ágúst 2017. Þá missti Dansverkstæðið húsnæðið vegna byggingarframkvæmda. Eftir nokkurn óvissutíma tókst að tryggja Dansverkstæðinu nýjan og mun stærri samastað á Hjarðarhaga 47. Miklar breytingar þurfti að gera í húsinu til að það hentaði starfsemi Dansverkstæðisins og í eitt ár var starfsemin í lausu lofti. Á haustmánuðum 2018 byrjaði starfsemi Dansverkstæðisins að fikra sig yfir þröskuldinn, þó framkvæmdir stæðu enn yfir. Haustið 2019 var Dansverkstæðið formlega opnað á Hjarðarhaganum og fánar Dansverkstæðisins dregnir að húni.

Sagan
Skýrslur um dans

SKÝRSLUR UM DANS

​Félag íslenskra listdansara og Samtök um Danshús hafa gert skýrslur um dans sem veita fróðlega innsýn í sögu og starfsumhverfi listdansins.

Screenshot 2022-12-12 at 13.31.31.png

Dansstefna 22/23

​FÍLD, 2022

pDC4kvTA.png

Danshús á Íslandi

Samtök um Danshús,

Íslenski dansflokkurinn

og RDF, 2017

fild_listdanskennsla_2013_000.jpg

Listdanskennsla á Íslandi

FÍLD, 2011

673.0.png

Dansstefna 10/20

FÍLD, 2010

danshus-dansmidstod_000.jpg

Tillögur að Danshúsi

FÍLD, 2007

MVF_IS_2L_sRGB_2022.png

Menningar-, viðskipta- og ferðamálaráðuneytið styður Dansverkstæðið

IS Fjármagnað af Evrópusambandinu_POS.jpg

Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins fjármagnar sérverkefni á Dansverkstæðinu 

Reykjavik_Coat_of_Arms.svg.png

Reykjavíkurborg

styður Dansverkstæðið

bottom of page